Jelena Antic & Skúli Arason: Ör jarðar
fös., 12. sep.
|Reykjavík
Jelena Antic myndlistarmaður og Skúli Arason hljóðlistamaður opna sýninguna Ör jarðar á Korpúlfsstöðum þann 12. september kl. 19. Um er að ræða umlykjandi ljósmynda- og hljóðinnsetning sem dregur fram hinn óvænta og leynda kraft sem býr í náttúrunni.


Dagsetning & tími
12. sep. 2025, 19:00 – 21. sep. 2025, 18:00
Reykjavík, Thorsvegur, 112 Reykjavík, Ísland
Um viðburðinn
Jörðin er alsett örum. Ör sem sýna það hvernig leiðin fram á við getur skilið eftir sig djúp sár, jafnvel sprungur.
Örin leynast líka innra með okkur. Sum hafa gróið vel önnur illa en án þeirra værum við ekki hér - nákvæmlega eins og við erum.
Jelena Antic myndlistarmaður og Skúli Arason hljóðlistamaður opna sýninguna Ör jarðar á Korpúlfsstöðum þann 12. september kl. 19. Um er að ræða umlykjandi ljósmynda- og hljóðinnsetning sem dregur fram hinn óvænta og leynda kraft sem býr í náttúrunni.
Á sýningunni má sjá ljósmyndaseríuna Undiralda eftir Jelenu þar sem sjónum er beint að því hvernig tíminn setur mark sitt á náttúruna, hvort sem um er að ræða hraða kólnun hrauns eða hægfara niðurbrot efnis. Ör sem kraftar náttúrunnar skilja eftir og setja mark sitt á jörðina með afgerandi hætti.
Út frá ljósmyndaverkum Jelenu hefur Skúli Arason, einnig þekktur sem Sk-Ar, samið tónverk sem berst úr fjórum hátölurum og skapar óvænta og kraftmikla upplifun í hráu rými Korpúlfsstaða.
Sýningin stendur til 21. september og er opin fimmtudaga til sunnudaga frá kl. 14 - 18. Sýningarstjóri er María Margrét Jóhannsdóttir.
Um Jelenu Antic:
Jelena Antic (f. 1979) er myndlistarmaður frá Belgrad, Serbíu en hefur undanfarin ár búið og starfað í Reykjavík. Jelena er með meistaragráðu í myndlist frá Listaháskólanum í Belgrad auk þess sem hún er grafískur hönnuður. Jelena hefur verið virk í sýningarhaldi á Íslandi auk þess sem verk hennar hafa verið sýnd erlendis í löndum á borð við Frakkland, Bandaríkin, Serbíu og Kúbu. Í list Jelenu má greina lotningu fyrir tímanum þar sem hún beinir sjónum sínum að náttúrulegum ferlum og áhrif þeirra á umhverfið. Verk hennar kalla fram hugleiðingar um tengsl mannsins við hina síbreytilegu krafta náttúrunnar sem sumir eru áþreifanlegir en aðrir óræðari og erfiðara er að henda reiður á.
Um Skúla Arason:
Skúli Arason tónlistarmaður starfar undir listamannsheitinu Sk-Ar. Hann á að baki víðtæka reynslu úr tónlistarheiminum og hefur sent frá sér þrjár breiðskífur. Nýjustu verk hans eru Ós, plata sem unnin var út frá samnefndum bæ, og svo raftónlistarverkið 82-24-J6 sem var frumflutt í Listasafni Reykjavíkur. Tónverk Skúla innihalda gjarnan upptökur unnar úr umhverfishljóðum sem sett eru í fjölbreytt samhengi við önnur hljóðfæri og hljóðgervla. Í sköpun sinni leitast hann við að fanga kraft náttúrunnar og hið óvænta sem umlykur hana.
Nánari upplýsingar veita:
Jelena Antic: antic.jelenaantic@gmail.com eða s. 6626355
Skúli Arason: skuliara@gmail.com eða s. 6962455
English
The Earth is covered in scars. Scars that show how the path forward can leave deep wounds, even fissures.
The scars also hide within us. Some have healed well, others poorly, but without them we would not be here – exactly as we are.
Artist Jelena Antic and sound artist Skúli Arason open the exhibition Scars of the Earth at Korpúlfsstaðir on September 12 at 19:00. The exhibition is an immersive photography and sound installation that reveals the unexpected and hidden power that resides in nature.
On display is Jelena’s photography series Undercurrent, which focuses on the ways time leaves its mark on nature, whether through the rapid cooling of lava or the slow erosion of material. Scars left by the forces of nature that mark the earth in a decisive way.
Based on Jelena’s photographs, Skúli Arason – also known as Sk-Ar – has composed a sound piece that plays from four speakers, creating an unexpected and powerful experience in the raw space of Korpúlfsstaðir.
The exhibition runs until September 21 and is open Thursday to Sunday from 14:00–18:00. The curator is María Margrét Jóhannsdóttir.
About Jelena Antic
Jelena Antic (b. 1979) is an artist from Belgrade, Serbia, who has lived and worked in Reykjavík for the past several years. She holds a master’s degree in fine art from the University of Arts in Belgrade and also works as a graphic designer. Jelena has been active in exhibiting in Iceland, and her works have also been shown abroad in countries such as France, the United States, Serbia, and Cuba.
Her art shows a reverence for time, as she directs her focus toward natural processes and their impact on the environment. Her works evoke reflections on humanity’s relationship with the ever-changing forces of nature, some of which are tangible while others are more elusive and difficult to grasp.
About Skúli Arason
Musician Skúli Arason works under the artist name Sk-Ar. He has extensive experience in the music world and has released three albums. His most recent works include Ós, an album created in dialogue with the town of the same name, and the electronic music piece 82-24-J6, premiered at the Reykjavík Art Museum.
Skúli’s compositions often include recordings of environmental sounds, set in diverse contexts with other instruments and synthesizers. In his creative work, he seeks to capture the power of nature and the unexpected that surrounds it.
For more information, contact:
Jelena Antic: antic.jelenaantic@gmail.com / +354 662 6355
Skúli Arason: skuliara@gmail.com / +354 696 2455


