top of page

Ragnar Hólm Ragnarsson: Fantatök

508A4884.JPG

fimmtudagur, 2. maí 2024

Ragnar Hólm Ragnarsson: Fantatök

Ragnar Hólm Ragnarsson opnar málverkasýningu sína Fantatök í Galleri Gróttu fimmtudaginn 2. maí n.k. kl. 17.

Við fyrstu sýn virðast málverkin koma úr ýmsum áttum. Í gegnum sýninguna liggur þó rauður þráður ólíkra táknmynda sem birtast og hverfa á víxl. Augun hvarfla frá því sem er til þess sem virðist vera þegar abstrakt málverk taka á sig mynd hlutbundins veruleika. Með djörfum pensilstrokum miðlar málarinn sterkum tilfinningum sem tengjast gjarnan gleði og ótta, frelsi og kvíða, friði og stríði.

Í rúman áratug hefur Ragnar Hólm (f. 1962) sinnt myndlist af mikilli ástríðu og sótt námskeið hjá þekktu myndlistarfólki hér heima og erlendis. Hann hefur haldið yfir 20 einkasýningar, þá fyrstu árið 2010. Vatnslitamyndir Ragnars hafa verið valdar á fjölda samsýninga evrópskra vatnslitamálara. Síðustu árin hafa kraftmikil og litrík olíumálverk orðið æ fyrirferðameiri í listsköpun hans.

„Abstrakt málverk mín hafa löngum verið öðrum þræði fígúratív en á síðustu árum hef ég meðvitað reynt að afmá andlit og ýmsar kynjaverur úr þeim þannig að hið óhlutbundna ráði fyrst og fremst ríkjum. Það ætlar að reynast æði snúið verkefni því fólkið og táknin skjóta alltaf aftur upp kollinum,“ segir Ragnar um málverkin á sýningunni.

Sýningin er opin á afgreiðslutíma bókasafnsins. Síðasti sýningardagur er laugardagurinn 25. maí nk.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page