top of page

Jón Axel í Gallerí GunHil

508A4884.JPG

fimmtudagur, 18. apríl 2024

Jón Axel í Gallerí GunHil

Málverk Jóns Axels Björnssonar dansa á litríkum mörkum hins sýnilega og ósýnilega, á milli forma sem birta okkur hluti og fanga huglægt ástand. Verkin einkennast af stórum einlita flötum sem skipta upp myndfletinum og fljóta á yfirborði hans. Víða skjóta mannsmyndir upp kollinum á leið út eða inn við jaðar myndrammans. Myndheimurinn er samhæfður – litafletir, fígúrur og hlutir skapa spennu innan rammans og gefa til kynna að í verkunum búi saga.

Jón Axel er fæddur 1956 í Reykjavík. Hann stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands á árunum 1975–1979. Jón er starfandi myndlistarmaður og hefur haldið fjölda sýninga á Íslandi og erlendis.

Sýning Jóns Axels opnar í Gallerí GunHil að Hlíðarfæti 13, 102 Reykjavík laugardaginn 2. mars. Sýningin er opin frá kl. 10 til 16 á virkum dögum eða eftir samkomulagi

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page