top of page

Hanna Dís Whitehead: Eiginleikar - Attributes

508A4884.JPG

miðvikudagur, 24. apríl 2024

Hanna Dís Whitehead: Eiginleikar - Attributes

Velkomin á opnun sýningar Hönnu Dísar Whitehead “Eiginleikar - Attributes” í Listasal Mosfellsbæjar laugardaginn 20. apríl kl 14:00 - 16:00.

Á sýningunni er leikið með ólíka eiginleika efniviða, forma og hluta.

Þegar við búum okkur heimili mótum við veggi, gólf og loft í rýminu í landslagi sem okkur líkar. Við fyllum það af litum, áferðum, formum og minningum. Húsnæðið þarf auk þess að hafa nokkuð notagildi, til að mynda þarf að vera hægt að setjast þar niður, elda mat og sofa. Við þurfum líka rými fyrir hugann og flest kjósum við að heimilið sé staður fyrir hjartað og sálina. Heimili okkar getur verið nákvæmlega eins og okkur dettur í hug.



Í verkin notast Hanna Dís meðal annars við endurunnin, sjálfbæran eða íslenskan við í samtali við leir, textíl og strá.

Verkin eru sjálfstætt framhald verka sem sýnd voru á Stockholm Furniture fair í Svíþjóð nú í febrúar en þau sem sýningunni tengjast verða einnig sýnd í samtali við ný verk.

Sýningin er hluti af dagskrá Hönnunarmars en stendur frá 20.apríl til 17.maí.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page