top of page

Halldór Árni Sveinsson:Góðra verka fólk

508A4884.JPG

fimmtudagur, 2. maí 2024

Halldór Árni Sveinsson:Góðra verka fólk

Myndlistarsýning Halldórs Árna opnar á alþjóðlegum baráttudegi verkafólks, 1. maí í Litla Gallerý á Strandgötunni. Þetta er 3. sýning hans í þessum litla en vinsæla sýningarými, sem er á milli tveggja húsa sem flestir hafnfirðingar þekkja, en þau hýstu verslanir Magga úrara og skóverslun Geira Jó.

Halldór lærði myndlist í MHÍ 1982-6, hefur haldið fjölda sýninga og tekið þátt í samsýningum, en auk þess kenndi hann listmálun í yfir 30 ár, einkum í Námsflokkunum.

Þema sýningarinnar kallast á við opnunardaginn 1. maí, og heitir sýningin "Góðra verka fólk". Á sýningunni er einungis ein landslagsmynd, en aðrar myndir hverfast um persónu góðra verka fólks. Ekki endilega verkafólks í þröngasta skilningi, heldur líka fólks sem Halldór Árni hefur kynnst á lífsleiðinni - lífs og liðnum - og hefur auðgað mannlífið í Firðinum með góðri nærveru sinni.

Sýningaropnun verður miðvikudaginn 1.maí 16:00-18:00.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page