top of page

Auglýst eftir umsóknum: vinnustofudvöl við ISCP sumarið 2025

508A4884.JPG

fimmtudagur, 2. maí 2024

Auglýst eftir umsóknum: vinnustofudvöl við ISCP sumarið 2025

Myndlistarmiðstöð auglýsir til umsóknar styrk til þriggja mánaða vinnustofudvalar við International Studio & Curatorial Program (ISCP) í New York.

Dvölin stendur frá júní – ágúst 2025.

Boðið er upp á rúmgóða einkavinnustofu sem listamaður hefur aðgengi að allan sólarhringinn. ISCP skipuleggur reglulegar vinnustofuheimsóknir til gestalistamanna frá sýningarstjórum og fagfólki, heimsóknir á söfn, gallerí, sýningarstaði og fyrirlestra. Þau sem dvelja hjá ISCP fá aðgengi að öflugu, alþjóðlegu tengslaneti; sýningarstjórum, safnafólki, blaðamönnum og öðrum sem starfa innan geirans.

Styrkurinn tekur til vinnustofudvalar, en ekki framfærslukostnaðar. Dvölin er fjármögnuð af Myndlistarráði. Forval á umsóknum er í höndum Myndlistarráðs, en lokaval er í höndum fagnefndar ISCP.

Umsóknarfrestur rennur út mánudaginn 3. júní 2024.

Umsóknin og umsóknargögn þurfa að vera á ensku.

Umsóknareyðublað: https://myndlistarsjodur.eydublod.is/Forms/Form/ISCP-2024

Vinsamlega sendið eftirfarandi gögn með umsókninni:

Ferilskrá, hámark 5 síður
10 ljósmyndir af verkum eða hlekkir á myndbönd. Taka skal fram titil, ártal, miðil og stærð eða lengd hvers verks. Auk þess má vera stuttur texti með lýsingu á verki.
Ef við á má senda afrit af greinum eða gagnrýni, hámark 10 síður
Ef við á má senda 2-3 afrit af sýningarskám eða útgefnu efni
Meðmælabréf

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page