top of page

Sunnudagsleiðsögn sýningarstjóra um Einkasafnið

508A4884.JPG

fimmtudagur, 16. mars 2023

Sunnudagsleiðsögn sýningarstjóra um Einkasafnið

Staðsetning: Fríkirkjuvegur 7, 19. mars kl. 14
Anna Jóhannsdóttir, sýningarstjóri leiðir gesti um sýninguna Einkasafnið – Lifandi skráning og sýning á völdum verkum úr safni Ingibjargar Guðmundsdóttir og Þorvaldar Guðmundssonar.
Aðgangseyrir á safnið gildir.
Í upphafi árs 2022 var listaverkasafn hjónanna Ingibjargar Guðmundsdóttur og Þorvaldar Guðmundssonar, sem kenndur var við Síld og fisk, afhent Listasafni Íslands til framtíðarvörslu. Safnið, sem samanstendur meðal annars af málverkum, teikningum, grafíkverkum, höggmyndum og lágmyndum, er með stærstu einkasöfnum hér á landi og telur um 1400 verk eftir marga af helstu listamönnum þjóðarinnar. Þar af eru um 400 verk eftir Jóhannes S. Kjarval sem var mikill vinur þeirra hjóna.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page