Sumarsýning Safnasafnsins og opnun Jennýjarstofu
fimmtudagur, 4. maí 2023
Sumarsýning Safnasafnsins og opnun Jennýjarstofu
Laugardaginn 6. maí klukkan 14 verða opnaðar 12 nýjar sýningar í Safnasafninu á Svalbarðseyri á verkum eftir 15 listamenn og nemendur í Leikskólanum Álfaborg og Valsárskóla. Lögð er áhersla á ferskar hugmyndir og vandað handverk, glerblástur, útsaum, silfursmíði, keramik, ljósmyndun, dúkþrykk og margvíslega unnin viðarverk. Minnst er þriggja látinna myndlistarmanna sem lífið fór hörðum höndum um og eru sýningar þeirra hannaðar undir kjörorðunum Skapað úr safnkosti. Þá er skoðað hvernig myndtjáning getur hjálpað til við að losna undan sjálfsskaða og loka hann inni í skáp. En þrátt fyrir alvarleika inngildingar og alþjóðlegra markmiða eru sýningar safnsins bjartar og litríkar og höfða til allra skilningarvita, ekki síst barna og unglinga sem taka þátt í starfi þess og gleðja gesti með hugmyndum sínum um fjölskyldu og vini
Á hlaðinu eru verk eftir Aðalheiði S. Eysteinsdóttur, Eggert Magnússon, Hauk Halldórsson, Helga Valdimarsson og Ragnar Bjarnason frá Öndverðarnesi og á bílastæði Safnvörðurinn frægi eftir Huglistarhópinn. Í anddyri og blómaskála er sýningin Fjölskylda og vinir með verkum eftir Guðjón R. Sigurðsson frá Fagurhólsmýri, Helga Þórsson og nemendur í Valsárskóla á Svalbarðsströnd og börn í Leikskólanum Álfaborg. Við sólpall að vestan er tréskúlptúrinn Bæn eftir Hjalta Skagfjörð Jósefsson
Í Brúðustofu eru sem endranær brúður til sýnis frá öllum heimshornum, og sérsýning í skáp með verkum eftir B. Sóley Péturssdóttir sem ber titilinn Þöggun - aldrei aftur.
Í miðrými er minningarsýning með verkum Pálma Kristinns Arngrímssonar (1930-2015) og í vestursal er sýning sem ber titilinn Í björtum sal, með raðir málverka eftir Hjálmar Stefánsson (1913-1989) frá Smyrlabergi. Í Austursal er önnur minningarsýning með verkum eftir lífskúnstnerinn Nonna Ragnas (1951-2019)
Við opnun fær safnið að gjöf 2.500 skráð textílverk sem Jennýj Karlsdóttir hefur safnað og fara þau í sérstaka stofu henni til heiðurs, þau verða aðgengileg á vefsíðu með haustinu en þangað til verða útsaumsverk úr safni hennar á sýningunni Heimilisprýði, einnig útsaumsverk og plattar eftir Sísí Ingólfsdóttur. Opnun Stofu Jennýjar Karlsdóttur, eða Jennýjarstofu í Safnasafninu er á Laugardag, samhliða opnun sumarsýningarinnar. Jenný Karlsdóttir hefur viðað að sér þekkingu á handverki alla tíð. Hún safnað handverki og munstrum í áratugi. Safnið hennar er einstaklega fjölbreytt og vandað, þ.m.t. vandaður faldbúningur. Þann 6. maí mun hún afhenda Safnasafninu safn sitt við hátíðlega athöfn.
„Við megum ekki gleyma því að handverkið er sá menningararfur sem gerði okkur kleift að lifa af harðindi, hungur og drepsóttir,“ segir Jenný Karlsdóttir, „Mér finnst virkilega gaman að fá tækifæri til að taka þátt í að koma á framfæri þessum hluta sögu okkar sem konur hafa skapað og lofa honum að skína til að vera metin að nýju fyrir eljuna, vandvirknina og listina sem handverkið er. Það sem var er grundvöllur að því sem er.“
Í Langasal eru sýnd verk eftir Brynhildi Þorgeisdóttur, í Norðursölum sýna Klemens Hannigan og saman þær Anna Hallin og Olga Bergman, og hjónin Guðmundur Ármann og Hildur María Hansdóttir. Í bókastofunni eru í ár sýnd verk Stefáns Tryggva- og Sigríðarsonar sem öll eiga það sameiginlegt að vera unnin í við, en með ólíkum hætti. Verk þessa fjölhæfa manns bera merki um þolinmæði, yfirlegu og natni. Titill sýningar Stefáns er Úr afgaungum eða öngvu.
Þeir sem eiga verk á sýningunni í ár eru Aðalheiður S. Eysteinsdóttir, Anna Hallin, B. Sóley Pétursdóttir, Brynhildur Þorgeirsdóttir, Eggert Magnússon, Guðjón R. Sigurðsson frá Fagurhólsmýri, Guðmundur Ármann, Haukur Halldórsson, Helgi Valdimarsson, Helgi Þórsson, Hildur María Hansdóttir, Hjálmar Stefánsson frá Smyrlabergi, Hjalti Skagfjörð Jósefsson, Huglist, Jenný Karlsdóttir, Klemens Hannigan, Nonni Ragnas, Olga Bergmann, Pálmi Kristinns Arngrímsson , Ragnar Bjarnason frá Öndverðarnesi, Sísí Ingólfsdóttir, Stefán Sigríðar- og Tryggvason og Börn úr Valsárskóla á Svalbarðsströnd og börn í Leikskólanum Álfaborg