top of page

Skýjamyndir í Gallerí Gróttu fimmtudaginn 19. janúar kl. 17

508A4884.JPG

fimmtudagur, 19. janúar 2023

Skýjamyndir í Gallerí Gróttu fimmtudaginn 19. janúar kl. 17

Unnar Ari Baldvinsson opnar sýninguna Skýjamyndir Í Gallerí Gróttu fimmtudaginn 19. janúar kl.17:00. Sýningin stendur til 11. febrúar.

Unnar Ari er fæddur á Akureyri, 1989. Hann lærði í Myndlistaskólanum í Reykjavík, Accademia Italiana og Florence University of Arts á Ítalíu þar sem hann útskrifaðist árið 2013. Unnar Ari hefur haldið fjölda einkasýninga og samsýninga á Íslandi og erlendis.

Einkasýningin “Skýjamyndir” fjallar um það að stöðva tímann og horfa til himins, að velta sér upp úr skýjunum og blanda saman litum og formum sem eru alltaf fyrir framan (ofan) okkur.

Verkin eru yfir 40 talsins og unnin á mismunandi miðla, krossvið og Flashé, pappír, hör og akríl.

Skýjamyndir eru skýjamyndir.
Brot af heilum himni.

Þverskurður af okkar eigin sjónarhorni
upp í geim af hreinum litum og formum.

Fantasíur og draumar.

Ský sem styðja hvort við annað,
vaxa og dafna á meðan að við útréttum.

Verkin eru skipulögð í kringum hvort annað en rýmið stjórnar vindáttinni.
Fletirnir á veggjunum skipa skýin sem sameinast í heilum himni.

(Ljósmyndir: Eyþór Árnason)

Kontaktupplýsingar:
Unnar Ari Baldvinsson
www.baldvinsson.com
+354 8221860

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page