Sýningin How did I get to the bomb shelter opnar laugardaginn 4. febrúar kl. 16

miðvikudagur, 1. febrúar 2023
Sýningin How did I get to the bomb shelter opnar laugardaginn 4. febrúar kl. 16
Sýningin HOW DID I GET TO THE BOMBSHELTER opnar laugardaginn 4. Febrúar kl. 16:00
Borgarstjóri Reykjavíkur opnar sýninguna og boðið verður upp á léttar veitingar.
Myndlistarmenn sýningarinnar eru:
Kinder Album (b. 1982)
Mykhaylo Barabash (b. 1980)
Jaroslav Kostenko (b. 1989)
Sergiy Petlyuk (b. 1981)
Elena Subach (b. 1980)
Art Group Sviter (b. 1982)
Maxim Finogeev (b. 1989)
Sýningarstjóri: Yuliia Sapiga
Um sýninguna
HOW DID I GET TO THE BOMBSHELTER / Hvernig ég komst í sprengjubyrgið er þverfagleg sýning sjö úkraínskra listamanna í Norræna húsinu, sýningarstjóri er Yulia Sapiha. Í sýningunni kafa listamennirnir djúpt ofan í eigin reynslu af innrás Rússa í Úkraínu, þrána eftir friðsælu lífi, leiðirnar til þess að þrauka af og vonina um framtíðina.
Sýningin leitast við að sýna reynsluheim þessara listamanna sem horfst hafa í augu við stríðið. Stríðstímar snúast um hörku, hatur og ótta en í þeim birtist einnig gegndarlaust hugrekki, samkennd og kærleikur, sem fyrir mörgum varð að þeirra „sprengjuskýli“. Í kjölfarið gætum við spurt: Hverjar voru leiðirnar að persónulegu skýli listamannanna?
Verkin skoða þessi viðfangsefni í nokkrum víddum, með því að búa til samtal milli hins nýja veruleika í Úkraínu og reynslunnar sem upp úr honum spratt. Áhorfandinn er dreginn inn í sögu Úkraínu sem opnar fyrir honum þessa upplifun af fyrir og eftir. Eftir stendur spurningin: Hvað verður eftir til þess að endurbyggja og endurskapa þegar stríðinu lýkur? Hvernig er hægt að finna frið á þessum erfiðu tímum og halda voninni um framtíðina lifandi?
Verið velkomin!