top of page

SÍM: TORG Listamessa í Reykjavík 2022 - Umsókn um þátttöku

508A4884.JPG

þriðjudagur, 19. apríl 2022

SÍM: TORG Listamessa í Reykjavík 2022 - Umsókn um þátttöku

TORG – Listamessa í Reykjavík 2022 verður haldin í fjórða sinn dagana 14.-23. október.

Sem fyrr verður TORGið haldið á Korpúlfsstöðum og stendur öllum félagsmönnum SÍM til boða að senda inn umsókn.

TORG – Listamessa í Reykjavík er hugsuð sem vettvangur fyrir listamenn til að kynna sína myndlist og selja hana, án aðkomu milliliða og um leið veita áhugafólki um íslenska myndlist tækifæri til að fjárfesta í myndlist beint af listamanninum.

Líkt og áður verður boðið upp á að leigja þar til gerða sýningarbása, sem samsettir eru úr hvítum þiljum. Hvert þil er um það bil 1m á breidd og 2,50m á hæð. Listamenn ráða hvort þeir verði einir eða með öðrum með bás. Eina skilyrðið er að allir þátttakendur séu fullgildir félagsmenn í SÍM.

Ljóst er að aldrei verður hægt að uppfylla óskir allra umsækjenda um stærð og lögun bása, en mikilvægt er að í umsókn komi fram óskir um stærð báss. Lágmarksstærð bása eru 8 þil.

Sérstök sýningarnefnd TORG og sýningarstjóri fara yfir umsóknir um þátttöku og útdeila sýningarrýmum.
Samþykki sýningarnefnd þátttöku þína, færð þú sendan tölvupóst með upplýsingum um staðfestingargjald, sem í ár verður 15.000 kr., sem verður óendurgreiðanlegt (e. Non refundable). Öllum umsóknum verður svarað.

SÍM mun útbúa auglýsingaefni og sýningarskrá fyrir TORGið og því mikilvægt að allir sem hafa hug á að taka þátt séu skráðir. Stefnt er að því að ráða sérstaka sýninga- og kynningarfulltrúa TORGsins
SÍM mun, eftir sem áður, bjóða upp á greiðslusamninga við kaup á listaverki sem gera kaupanda kleift að greiða listaverk með jöfnum, vaxtalausum mánaðargreiðslum í allt að 36 mánuði. Slíkan samning má aðeins gera fyrir verk sem kosta að hámarki 500.000kr, en með þessum hætti aukast möguleikar á viðskiptum milli kaupanda og listamanna.

Torg – Listamessa í Reykjavík 2021 heppnaðist einstaklega vel og voru umsagnir þátttakenda og gesta mjög jákvæðar. Sala á listaverkum fór fram úr björtustu vonum og hefur sú kynning sem hlaust af listamessunni, í einhverjum tilfellum, leitt til áframhaldandi aukningar viðskipta. Verk listamanna seldust fyrir yfir 25 milljónir króna. 3D mynd var send í loftið og sáu yfir 1400 manns sýninguna í skýinu hér heima og víða um lönd.

Áhuginn fyrir TORGinu er alltaf að aukast og við gerum ráð fyrir fleiri umsóknum í ár en áður en í fyrra bárust um hundrað umsóknir

Rétt er að benda á að hvert þil hækkar í verði í ár

Við hvetjum ykkur öll til að senda inn umsókn.

Umsókn má fylla út hér:

https://forms.gle/bqctGreUF4EMiLjz5

Umsóknarfrestur er til 20.maí 2022

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page