top of page

Síðasta sýningarhelgi framundan: Hildur Hákonardóttir: Rauður þráður

508A4884.JPG

fimmtudagur, 9. mars 2023

Síðasta sýningarhelgi framundan: Hildur Hákonardóttir: Rauður þráður

Sýningunni Hildur Hákonadóttir: Rauður þráður fer senn að ljúka en næstkomandi sunnudag, þann 12. mars, er síðasti sýningardagur. Rauður þráður hefur fengið glæsilegar viðtökur hjá gestum safnsins og við hvetjum alla þá sem eiga eftir að sjá þessa fjölbreyttu og yfirgripsmiklu sýningu á verkum Hildar að gera sér ferð á Kjarvalsstaði.
Á lokadegi sýningarinnar þann 12. mars kl.14.00 mun Söngfjelagið, kór undir stjórn Hilmars Arnar Agnarssonar, syngja inn vorið til heiðurs listakonunni.

Hildur hefur á löngum starfsferli sínum tekið á málefnum samtíma síns og kynjapólitík og nýtt til þess fjölbreytta miðla, þó mest vefnað. Sýningin Rauður þráður veitir innsýn í feril Hildar og starfsaðferðir hennar í gegnum tíðina sem eru samofnar þeim málefnum sem eru efst á baugi í samtíma okkar, einkum umhverfis- og jafnréttismál.

Hildur lærði myndvefnað við Myndlista- og handíðaskólann 1964-68 og Edinburgh College of Art 1969. Henni þótti hún hafa lært fánýti þegar hún útskrifaðist úr listaskólanum árið 1969 en áttaði sig fljótlega á því að sú sem kann að vefa kann að skipuleggja fjöldahreyfingu.

Hildur Hákonardóttir var ein af frumherjum Rauðsokkahreyfingarinnar sem olli straumhvörfum innan jafnréttisbaráttunnar á áttunda áratugnum. Rauðsokkur tóku þátt í pólitískri umræðu og stóðu fyrir útgáfu, gjörningum og öðrum aktívisma sem opnaði augu margra fyrir kúgun kvenna. Titill sýningarinnar er skírskotun til vefnaðar og textíls en líka til þess hvernig vefnaður er notaður sem myndlíking í tungumálinu. Rauður er litur byltingarinnar þó svo það sé ekki sagt berum orðum.

Sýningin er afrakstur rannsóknar Sigrúnar Ingu Hrólfsdóttur á ferli Hildar. Listasafn Reykjavíkur hlaut Öndvegisstyrk Safnaráðs árið 2021 til þess að rannsaka hlut kvenna í íslenskri myndlist í samstarfi við námsbraut í listfræði við Háskóla Íslands. Sýningin er sú fyrsta af þremur sem úr þessum Öndvegisstyrk kemur. V

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page