Leiðsögn listamanns: Sigga Björg og Ásmundur Sveinsson:
Andardráttur á glugga

fimmtudagur, 9. mars 2023
Leiðsögn listamanns: Sigga Björg og Ásmundur Sveinsson:
Andardráttur á glugga
Sigga Björg myndlistarmaður verður með leiðsögn um sýninguna Andardráttur á glugga í Ásmundarsafni laugardaginn 11. mars kl. 14:00.
Skráning HÉR: https://listasafnreykjavikur.us6.list-manage.com/track/click?u=57fb68a48bffe98972181e23c&id=31c261d8ce&e=706aed0f77
Heimur trölla, álfa, drauga og annarra kynjavera opnast á sýningunni Andardráttur á glugga í verkum Siggu Bjargar og Ásmundar Sveinssonar.
Sigga Björg er kunn af hugmyndaríkum teikningum sínum, innsetningum, myndböndum og bókverkum. Á þessari sýningu vinnur hún meðal annars nýja myndröð út frá íslenskum þjóðsögum. Sagnaminni og þjóðsögur sem Ásmundur kynntist í æsku rötuðu líka með beinum eða óbeinum hætti inn í verk hans sem eru á sýningunni.
Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir handhafa Árskorts Listasafns Reykjavíkur og Menningarkorts Reykjavíkur.