top of page

Hafnarborg: Fáeinar vangaveltur um ljósmyndun - III. hluti - Hallgerður Hallgrímsdóttir

508A4884.JPG

föstudagur, 21. janúar 2022

Hafnarborg: Fáeinar vangaveltur um ljósmyndun - III. hluti - Hallgerður Hallgrímsdóttir

Laugardaginn 22. janúar verður sýning Hallgerðar Hallgrímsdóttur, Fáeinar vangaveltur um ljósmyndun – III. hluti, opnuð í Sverrissal Hafnarborgar. Sýningin er hluti af Ljósmyndahátíð Íslands, sýningarstjóri er Unnar Örn Auðarson.

Það er svo auðvelt að taka mynd – bara að ýta á takkann – næstum objet trouvé, skjalfesting á fundarstað ljóseinda við sameindir. Á sama tíma er ljósmyndin leyndardómsfull og tilfinningarík, þar sem fagurfræði og innsæi leggja sitt á vogarskálarnar og vísindin eru aldrei langt undan.
Á sýningunni veltir Hallgerður fyrir sér ljósmyndatækninni sem miðli þar sem hún skoðar bæði veruleikann í ljósmyndinni sem og veruleika ljósmyndarinnar sjálfrar. Verkin eru unnin með möguleika miðilsins í huga sem felast ekki bara í því að fanga viðfangsefnið í fallegri birtu, heldur líka öllu sem gerist í myndavélinni, í myrkraherberginu og, nú nýlega, í stafrænni vinnslu. Á hverju stigi í ferlinu getur myndin farið í ólíkar áttir – það er engin ein rétt leið til að búa til ljósmynd og sýn myndavélarinnar er aldrei hlutlaus.

Hallgerður Hallgrímsdóttir er myndlistarkona sem vinnur mest með ljósmyndamiðlinn í sinni sköpun. Hún er með BA í myndlist með áherslu á ljósmyndun frá Glasgow School of Art og meistaragráðu í myndlist frá Akademin Valand í Gautaborg, þaðan sem hún lauk námi árið 2019. Verk hennar hafa farið víða og verið sýnd meðal annars í The Photographer’s Gallery í London, Hasselblad Center í Gautaborg, í Listasafninu á Akureyri, Listasafni Færeyja, Ljósmyndasafni Reykjavíkur og Listasafni Reykjavíkur. Ljósmyndabók Hallgerðar Hvassast kom út árið 2016 og svo 2018 gaf Pastel ritröð út ljóð-myndabókina Límkennda daga. Hallgerður býr og starfar í Reykjavík.

Safnið er opið frá 12 – 17. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. Sýningin hlaut styrk frá Myndstef.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page