top of page

Áslaug Íris Katrín Friðjónsdóttir: Listamannaspjall í Neskirkju, 5. febrúar kl. 12

508A4884.JPG

miðvikudagur, 1. febrúar 2023

Áslaug Íris Katrín Friðjónsdóttir: Listamannaspjall í Neskirkju, 5. febrúar kl. 12

Sunnudaginn 5. febrúar kl. 12, að lokinni messu, verður haldið listamannaspjall um sýninguna Skil | Skjól sem nú stendur yfir í safnaðarheimili Neskirkju.
Þá mun Áslaug Íris Katrín Friðjónsdóttir, listamaður, segja frá verkum sínum á sýningunni, vinnuferli og efnistökum sýningarinnar ásamt Völu Pálsdóttur, sýningarstjóra sýningarinnar sem leiðir spjallið.

Tímamót, kaflaskil, veðramót, vatnaskil, umskipti, straumhvörf og þáttaskil. Hverfulleiki. Á hverjum tíma eiga sér stað breytingar, stundum verulegar en oftar smáar. Áþreifanlegar en líka án vitundar okkar. Í afstæðu tímans skiptir lengd ekki máli heldur sú þekking og reynsla sem vex innra með okkur.
Á sýningunni leitast Áslaug við myndgera þann snertipunt sem skilur að ólíka krafta, atburði eða upplifanir. Líf og dauða, svefn og vöku, inni og úti, hraða og stillu, fyrir og eftir.
Lína er dregin í sandinn, steinar lagðir niður sem verða að grjóthleðslu, sem verður svo að vegg sem síðan myndar skjól. Skjól fyrir veðráttu, hraða, óreiðu, tíma og öllu öðru utanaðkomandi. Öruggt rými. Þar ríkir jafnvægi sem leyfir sárum að gróa, fræjum að spíra og rósir fá næði til að opnast ofurhægt – springa út og blómstra.

Í sýningarskrá má finna texta eftir Ragnheiði Hörpu Leifsdóttur, rithöfund og skáld.
Sýningin stendur til 19. febrúar.
Sýningarstjórn er í höndum Völu Pálsdóttur.

Áslaug Íris Katrín Friðjónsdóttir (f.1981) vinnur í ýmsum miðlum en í verkum hennar koma saman tvívídd málverksins ásamt þrívídd með notkun fjölbreytts efniviðs og aðferða. Allt frá upphafi ferils síns hefur Áslaug tekist á við formræna fagurfræði og myndbyggingu þar sem listsköpun hennar einkennist af stöðugri leit að jafnvægi. Hún hefur unnið með ólík efni í verkum sínum en rík efniskennd er sterkur þáttur í verkum hennar. Flísafúga, steinar, marmari og línoleumdúkar fléttast með vatnslitum, akrílmálningu og öðrum hefðbundnari listmiðlum. Áslaug lauk BA gráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2006 og meistaragráðu í myndlist frá School of Visual Arts í New York árið 2009. Verk hennar hafa verið sýnd víða á listasöfnum og galleríum á Íslandi, í Evrópu og Bandaríkjunum. Áslaug hefur m.a. haldið einkasýningar í Ásmundarsal, Hverfisgallerí, Listval og Þulu á Íslandi.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page