Innreið hins pólitíska og umdeilda listamanns Santiagos Sierras í íslenskan veruleika hefur vakið gríðarlega eftirtekt og mikil viðbrögð, en sýning hans verður opnuð í Hafnarhúsi – Listasafni Reykjavíkur föstudagskvöldið 20. janúar. Santiago hefur þegar látið að sér kveða með atvinnuauglýsingum í dagblöðum og í dag, mánudag kl. 14 hófst fjögurra daga gjörningur listamannsins fyrir utan Alþingishúsið á Austurvelli þegar alþingi kom saman að nýju eftir jólafrí.
Listamaðurinn hefur valið fjölmarga áfangastaði innan borgarmarkanna þar sem umræddur gjörningur, NO, Global Tour fer fram, en allir tengjast staðirnir ádeilu hans á kapítalskt markaðshagkerfi og efnahagshruni Íslands á einhvern hátt.
Gjörningurinn NO, Global Tour felst í því að risavöxnum skúlptúr, sem gerður er úr stöfunum NO, er ekið um borgina á vörubílspalli. Verkið er þriggja metra hátt, fjögurra metra breitt og vegur eitt og hálft tonn að þyngd. Því mun verða stillt upp við þá staði og byggingar sem listamaðurinn deilir á.
Gjörningurinn er hluti af stærra verkefni Santiagos Sierras, sem hefur staðið yfir sleitulaust víða um heim frá árinu 2009 þegar NO skúlptúrinn lagði upp í sína fyrstu ferð frá Lucca á Ítalíu. Förin var fest á filmu, líkt og nú er gert, og var fyrsti hlutinn frumsýndur á Kvikmyndahátíðinni í Berlín í febrúar á síðasta ári.
Myndin, sem er tveggja klukkustunda löng verður sýnd í Bíó Paradís þriðjudaginn 24. janúar kl. 20. Aðgangur er ókeypis fyrir Menningarkortshafa.
Nánari upplýsingar má finna hér: www.noglobaltour.com