Fara í leiðarkerfi


Samband Íslenskra Myndlistarmanna
The association of Icelandic visual artists

Samstarfsaðilar

  • Skrifstofa SÍM rekur UMM.IS – Upplýsingavef um myndlist og myndhöfunda á Íslandi en vefurinn er byggður á gögnum frá Upplýsingamiðstöð myndlistar sem starfækt var um 10 ára skeið með stuðningi íslenska ríkisins.
  • Listskreytingasjóður ríkisins er rekinn í SÍM húsinu
  • Artótekið er rekið í samvinnu við SÍM í Borgarbókasafninu, en þar getur almenningur leigt út verk eftir félagsmenn SÍM
  • Handbókin er upplýsingasíða fyrir starfandi listamenn og meistaraverkefni Kristjönu Rósar Guðjohnsen myndlistarmanns í Hagnýtri menningarmiðlun við Háskóla Íslands. Kristjana er jafnframt starfsmaður SÍM.
  • Kynningarmiðstöð íslenskrar myndlistar er vettvangur upplýsinga fyrir íslenska myndlistarmenn, jafnt sem erlenda, sýningastjóra, safnara, blaðamenn og alla þá sem eru áhugasamir um íslenska myndlist. Miðstöðin er starfrækt í SÍM húsinu, Hafnarstræti 16.
  • Tilgangur Myndstefs er að fara með höfundarétt félagsmanna vegna opinberrar endurbirtingar og sýningar á verkum þeirra og stuðla að almennri höfundaréttargæslu á þessu sviði. Myndstef innheimtir þóknun fyrir notkun á höfundarétti félagsmanna sinna og kemur henni til skila til þeirra. Myndstef er starfrækt í SÍM húsinu, Hafnarstræti 16