Á þessari síðu eru samkeppnisreglur SÍM, skattaleiðbeiningar fyrir myndlistarmenn, gjaldskrá SÍM, samningar og aðrar gagnlegar upplýsingar.
SÍM aðstoðar félagsmenn sína í faglegum málefnum, s.s. í sambandi við höfundarétt, vsk, tryggingar, flutninga, tollamál, ýmis réttindi, sýningarhald og lögfræðileg atriði. Öll aðstoð sem SÍM veitir stendur félagsmönnum til boða endurgjaldslaust.