Fara í leiðarkerfi


Samband Íslenskra Myndlistarmanna
The association of Icelandic visual artists

Eleanor Heartney – Myndlist og vinnuframlag

Fimmtudag 26. janúar kl. 20
Hafnarhús – Umræðuþræðir
Eleanor Heartney – Myndlist og vinnuframlag

Eleanor Heartney myndlistargagnrýnandi og fræðimaður, hefur fengist við skrif fyrir fjölda alþjóðlegra listtímarita á borð við Art in America, Artpress, Artnews, Art and Auction, The New Art Examiner, ásamt Washington Post og New York Times. Meðal útgefinna fræðibóka má nefna Critical Condition: American Culture at the Crossroads (Cambridge University Press, 1997); Postmodernism (Cambridge University Press, 2001); Postmodern Heretics: The Catholic Imagination in Contemporary Art (Midmarch Arts Press, 2004); Defending Complexity: Art, Politics and the New World Order (Hard Press Editions, 2006) og Art and Today (Phaidon Press Inc., 2008), sem var yfirlit yfir samtímalist síðustu 25 ára. Einnig var hún meðal ritsjóra bókarinnar After the Revolution: Women who Transformed Contemporary Art (Prestel Publishing, 2007), sem hlaut Susan Koppelman Award árið 2008. Árið 1992 hlaut Heartney verðlaunin College Art Association’s Frank Jewett Mather Award fyrir afrek á sviði myndlistargagnrýni. Einnig hlaut hún heiðursverðlaun Franska ríkisins, Chevalier dans l’Ordre des Arts et des Lettres, árið 2008. Heartney er fyrrum formaður AICA-USA bandaríska hluta hins alþjóðlega listfræðafélags International Art Critics Association.

Miðvikudag 21.mars kl. 20
Hafnarhús – Umræðuþræðir
Claire Bishop – Þátttökugjörningar

Claire Bishop er breskur listfræðingur og myndlistargagnrýnandi sem býr og starfar í New York. Hún er prófessor í samtímalistfræðum og sýningarstjórn við Listasögudeild CUNY Graduate Center, New York og hefur áður fengist við kennslu við Royal College of Art, London og Warwick University. Bishop hefur sinnt skrifum fyrir fjölda alþjóðlegra listtímarita á borð við Artforum, Flash Art, og October. Greinar Antagonism and Relational Aesthetics (October, 2004) og The Social Turn: Collaboration and its Discontents (Artforum, 2006) eru með áhrifameiri skrifum síðari ára sem hafa verið þýddar á fjölda tungumála og endurútgefnar. Einnig má nefna útgáfur á borð við Participation (MIT Press, 2006) og Installation Art: A Critical History (2005). Bishop hefur einnig fengist við sýningarstjórn athyglisverðra sýninga má þar helst nefna Double Agent (ICA, London; Mead Gallery, Warwick Arts Centre; og Baltic Centre for Contemporary Art, Gateshead).

Fimmtudag 12. apríl kl. 20
Hafnarhús – Umræðuþræðir
Helen Molesworth – Vinnusiðferði

Helen Molesworth er sýningarstjóri við Institute of Contemporary Art í Boston. Áður hefur hún sinnt ýmsum störfum, meðal annars sem deildarstjóri nútíma- og samtímalistar við Harvard Art Museum, sýningarstjóri Wexner Center for the Arts í Columbus, Ohio, sýningarstjóri yfir samtímalist við Baltimore Museum of Art (2000 – 2002); forstöðumaður Amelie A. Wallace Gallery við State University of New York (SUNY) og Old Westbury (1997 – 1999). Molesworth hefur sýningarstýrt fjölda markverðra sýninga, má þar helst nefna Long Life Cool White: Photographs by Moyra Davey og ACT UP New York: Activism, Art, and the AIDS Crisis, 1987–1993, Felix Gonzales-Torres: “Untitled” (Placebo – Landscape – for Roni) og hin eftirtektaverða sýning Part Object, Part Sculpture. Eins hefur hún sinn kennslu- og fræðslustörfum meðal annars við Yale School of Art, Bard Center for Curatorial Studies, SUNY, Old Westbury og Cooper Union School of Art. Hún var meðal ritstjóra listtímaritsins Documents og skrifar reglulega í tímarit á borð Art Journal, Artforum, Documents og October.

Fimmtudag 10. maí kl. 20

Hafnarhús – Umræðuþræðir
Alanna Heiss – Myndlist og möguleikar

Alanna Heiss er stofnandi og fyrrum forstöðumaður P.S.1 Contemporary Art Center (1976-2008) og hefur síðan stýrt AIR: Art International Radio og The Clocktower Gallery í New York. Heiss er ein af helstu forsprökkum hreyfingar listamannarekinna rýma, í upphafi með sýningarverkefnum eins og Under the Brooklyn Bridge árið 1971, sem sýndu innsetningar eftir helstu listamenn frá bæði Bandaríkjunum og Evrópu. Heiss hefur sýningarstýrt og skipulagt yfir 700 sýningar víða, meðal þeirra má nefna, Rooms (1976); New York, New Wave (1981); Stalin’s Choice: Soviet Socialist Realism, 1932-1956 (1993); Greater New York (2000 og 2005), og Arctic Hysteria (2008) sem allar voru sýndar í P.S.1; ásamt einkasýningum fjölda alþjóðlegra listamanna. Hún hefur hlotið fjölda heiðurverðlauna fyrir störf sín og framlag til myndlistar og einnig hlotið heiðursdoktorsgráðu frá bæði San Francisco Art Institute og Lawrence Universtity í Bandaríkjunum. 

 

Umræðuþræðir er samstarfverkefni Listasafns Reykjavíkur, Kynningarmiðstöðvar íslenskrar myndlistar og Listaháskóla Íslands. Lagt er uppi með að skapa vettvang hérlendis fyrir alþjóðleg tengsl og umræður með erlendum gestum í fyrirlestraröð ár hvert. Þátttakendur í verkefninu eru virtir sýningarstjórar, fræði- og listamenn sem eiga merkan feril að baki á alþjóðlegum vettvangi.

Á vorönn 2012 er unnið út frá þemanu Tilfærslur, þar sem erindi taka á verklagi listamannsins, sýningarumhverfi og aðstæðum. Hugmyndir um tilfærslur í álagi og ábyrgð, í samvinnu eða sem pólitísk eða samfélagsleg ádeila eru þræðir sem teknir eru upp. Unnið er á þematískan hátt í umræðum sem tengjast erindum fyrirlesara með vísunum í sýningar sem standa yfir hverju sinni. Þátttakendur á vormisseri eru Eleanor Heartney, Claire Bishop, Helen Molesworth og Alanna Heiss.

Aðalstyrktaraðili Umræðuþráða 2012 er Bandaríska sendiráðið á Íslandi.

Fyrirlestrar fara fram á ensku og eru öllum opnir án endurgjalds.