Sleppa leiðarkerfi

A Á B D E F G H I Í J K L M N O Ó P R S U V Þ

Yfirlit - Soffía Sæmundsdóttir


Soffía Sæmundsdóttir(1965) hefur verið virk í íslensku myndlistarlífi undanfarinn áratug. Hún stundaði myndlistarnám í Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1987-1991 og lauk Mastersgráðu í málun frá Mills College í Oakland, Kaliforníu 2001-2003. Hún hefur haldið fjölmargar einkasýningar og tekið þátt í samsýningum heima og erlendis. Verk hennar hafa verið sýnd víða m.a. í Evrópu og Norður-Ameríku. Soffía hefur þegið vinnustofudvöl í Leighton Studio´s í Banff Centre í Kanada og á Skriðuklaustri í Gunnarsstofu. Henni hafa hlotnast margvíslega viðurkennningar fyrir list sína, m.a. ferða- og dvalarsjóð Muggs, Jay De Fao verðlaunin(2003)og Joan Mitchell Painting and sculpture award(2004) kennd við samnefndar stofnanir. Hún var verðlaunahafi í Winsor og Newton alþjóðlegri málverkasamkeppni 2000. Verk hennar eru í eigu fjölmargra opinberra aðila og stofnana. Hún er félagi í SÍM og félaginu Íslensk grafík, en þar er hún í stjórn og sýningarnefnd. Soffía býr á Álftanesi en er með vinnustofu að Fornubúðum 8, Hafnarfirði.

Heimasíða

Kynningarbæklingur um Soffíu Sæmundsdóttur


Listaverk eftir höfund:
Titill : Flæði VI
Stærð : 30 x 30 cm
Tegund : Málverk
Verð : 80.000 kr.
Leiguverð : 3.000 kr.
Titill : Flæði V
Stærð : 30 x 30 cm
Tegund : Málverk
Verð : 80.000 kr.
Leiguverð : 3.000 kr.
Titill : Bergmál tímans
Stærð : 69 x 89 cm
Tegund : Málverk
Verð : 270.000 kr.
Leiguverð : 8.000 kr.
Titill : Kvika II
Stærð : 53 x 53 cm (stærð með ramma)
Tegund : Grafík
Verð : 80.000 kr.
Leiguverð : 3.000 kr.
Titill : Kvika IV
Stærð : 53 x 53 cm (stærð með ramma)
Tegund : Grafík
Verð : 80.000 kr.
Leiguverð : 3.000 kr.